Mætt Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn.
Dagskrá:
- Formaður gefur skýrslu.
Sagði Þórir formaður frá vinnu með SAPE hópnum og vinnu vegna eftirfylgni með sjúklingum eftir heilablóðfall og skráningu á heilblóðfalli, þar sem lítil eftirfylgni er í dag og þarf stórlega að auka og má þá ekki gleyma landsbyggðinni. - Fjármálin.
Páll gjaldkeri greinir frá stöðu fjármála, hefur safnast ágætlega vegna talþjálfunar á eftir að greiða Markaðsmönnum fyrir þeirra vinnu. Rætt var um að finna gott slagorð sem að gæti hitt í mark sem kynningu á Heilaheill og starfsemi þess. - SAP-E
SAP-E erindi fagaðila og verkefnastjóra Heilbrigðisráðuneytisins um gerð nýrrar landsáætlunar og verkefnastjóri Heilbrigðisráðuneytissins hefur boðað á fund þar sem þetta verður rætt - Önnur mál
Norðandeildin er farin að huga að sumarferð næsta sumar á Norðurlandinu, ætlum að skoða hvort næg þátttaka fæst í ferð hér sunnanlands sú ákvörðun tekin á maí fundi, hvort eða hvenær verður farið og hvert.
Fundi slitið 18.05
Fundarritari
Sædís Björk Þórðardóttir
