Reglulegur laugardags félagsfundur HEILAHEILLA var haldinn 5. september 2026 í húsakynnum félagsins í Mannréttindahúsi ÖBÍ, þar sem sérstakur gestur var Leeni Lassfeld, margmiðlunarfræðingur og listakona, og kynnti sérstaka aðferð við endurhæfingu slagþola.
Góður rómur var gerður að hugmyndum hennar og í ráði er að kynna aðferðir hennar á heimasíðu félagsins og bjóða öllum þátttöku og hvattir til hennar. Fjörugar umræður spunnust upp á milli fundarmanna um þátttökuleysi stjórnvalda í eftirmeðferð og eftirfylgni!

