Mætt Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn.
Dagskrá:
- Formaður gefur skýrslu
Þórir formaður sagði frá því sem hefur verið um að vera í félaginu í sumar og fram að þessum fundi. Tölvukerfið var í ólagi á síðasta laugardagsfundi, svo ekki heyrðist hljóð á ZOOM fundinum, verður vonandi komið í lag fyrir næsta fund. Enn er unnið að því að koma endurhæfingarprógramminu af stað Þórir með kynningu á verkefninu, gengur hægt að fá Landlækni til að innleiða þetta prógramm eins og er í löndum í kringum okkur. - Fjármálin.
Páll Árdal gjaldkeri sagði frá stöðu mála núna. Söfnun hafin hjá Markaðsmönnum og rætt um hvort einhver önnur tækifæri séu til að safna pening eða fá styrki. - Alþjóðadagur slagsins 29. október 2026 –
Slagorðið kemur út og vonandi næst að koma út fyrir slagdaginn. Hafa félagið sýnilegt á Slagdaginn, einhvað gert fyrir norðan líka - Útgáfumál
Blaðið er í vinnslu og stefnt á að það komi út fyrir slagdaginn - Tölvumál
Ekki hægt að sækja heila appið til niðurhals, einhver bilun í kerfinu og verið að skoða hvernig þetta er lagfært, spurt um kostnað við það þar sem mikill kostnaður var við að uppfæra það í fyrra. Ekki vitað um kostnað. - Önnur mál
Engin sérstök mál tekin fyrir í lokin, ákveðið að næsti fundur verður fyrsta mánudag í október.
Fundi slitið 18.30
Fundarritari
Sædis Björk Þórðardóttir Ritari
