Stjórnarfundur 14. september 2026

Mætt Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn.

Dagskrá: 

  1. Formaður gefur skýrslu
     Þórir formaður sagði frá því sem hefur verið um að vera í félaginu í sumar og fram að þessum fundi. Tölvukerfið var í ólagi á síðasta laugardagsfundi, svo ekki heyrðist hljóð á ZOOM fundinum, verður vonandi komið í lag fyrir næsta fund.  Enn er unnið að því að koma endurhæfingarprógramminu af stað Þórir með kynningu á verkefninu, gengur hægt að fá Landlækni til að innleiða þetta prógramm eins og er í löndum í kringum okkur.
  2. Fjármálin.
    Páll Árdal gjaldkeri sagði frá stöðu mála núna. Söfnun hafin hjá
    Markaðsmönnum og rætt um hvort einhver önnur tækifæri séu til að safna pening eða fá styrki.
  3. Alþjóðadagur slagsins 29. október 2026 –
    Slagorðið kemur út og vonandi næst
    að koma út fyrir slagdaginn. Hafa félagið sýnilegt á Slagdaginn, einhvað gert fyrir norðan líka
  4. Útgáfumál
    Blaðið er í vinnslu og stefnt á að það komi út fyrir slagdaginn
  5. Tölvumál
    Ekki hægt að sækja heila appið til niðurhals, einhver bilun í kerfinu og verið að skoða hvernig þetta er lagfært, spurt um kostnað við það þar sem mikill kostnaður var við að uppfæra það í fyrra. Ekki vitað um kostnað.
  6. Önnur mál
    Engin sérstök mál tekin fyrir í lokin, ákveðið að næsti fundur verður fyrsta mánudag í október.

Fundi slitið 18.30
Fundarritari
Sædis Björk Þórðardóttir Ritari

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur