Félagið hefur gert sér far um að fylgjast með þróun mála bæði innanlands og erlendis. Stafrænt umhverfi til handa slagþolendum er að ryðja sér rúm um allan heim. Það hefur fylgst vel með því sem er að gerast bæði innan lands sem utan, en það er aðili að ÖBÍ; starfar með Hjartaheill og Hjartavernd; er í samráðshópi SAMTAUGAR og á erlendum vettvangi er það aðili að SAFE (Stroke Alliance For Europe); í Slagforeningen í Norden (norrænt samstarf innan SAFE); þátttakandi í EFNA (European Federation of Neurological Associations). Formaðurinn, Þórir Steingrímsson er stjórnarmaður SAFE, sótti ráðstefnu EFNA (European Federation of Neurological Associations) í Dublin dagana 14.-15. október s.l.. Mynduðust góð tengsl við önnur lönd Evrópu og kemur sér vel að bera málefni Íslands saman við þau. Þarna voru fulltrúar margra félaga langveikra og margir fagaðilar fluttu fyrirlestra, þ.á.m. prófessor Melanie Calvert, PhD prófessor við Cambridge Háskóla er hefur víðtæka reynslu í hönnun og greiningu á klínískum rannsóknum m.m., aðferðafræði rannsókna.
Melanie Calvert, PhD prófessor |
Stund á milli stríða |