Laugardaginn 2. mars 2019 hélt HEILAHEILL sinn reglulega “ laugardagsfund”, þar sem öllum almenningi er boðið upp á að kynnast sjúkdómnum, forvörnum, meðhöndlun og endurhæfingu eftir slag (heilablóðfall), endurgjaldlaust, og stuðlar að því að hver sem hefur orðið fyrir áfallinu geti rekið inn höfuðið og fengið sér kaffi. Sá er meðal systkina í sjúkdóminum og finnur að hann er ekki einn. Að þessu sinni var Jóhann Sigurðarson, leikari, gestur fundarins. Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, hóf fundinn og sýndi fræðslumyndir um endurhæfingu einstaklinga hér á landi og sýndi að áfall er ekki endirinn! Einnig sýndi hann myndskeið um tækniframfarirnar á LSH og hvernig staða heilbrigðiskerfisins er í dag. Eftir alvöruna tók Jóhann við og léttti sko verulega undir með mannskapnum með söng og leik og vakti mikla kátínu. Á biðstólum var veglegt meðlæti, m.a. í tilefni af “Bolludeginum”, er nokkrir gestir komu með. Að lokum fóru allir fundargestir þakklátir heim.