Að bjarga mannslífum er aðalmarkmiðið! HEILAHEILL er þátttakandi í átaki heilsugæslunnar í landinu að vekja athygli á að Landspítali hóf formlega segabrottnámsmeðferð við blóðþurrðarslögum hinn 9. janúar 2018 og fékk heiðursviðurkenningu á ársfundum hans 2018 og 2019! Það skref var stigið í framhaldi af nýju verklagi við móttöku og meðferð sjúklinga með brátt heilaslag. Tíminn skiptir máli! Markmiðið er að bæta horfur sjúklinga með brátt blóðþurrðarslag. Meðferðin stuðlar að enduropnun æðarinnar eins fljótt og unnt er til að minnka skaða á heila og fötlun sem af honum hlýst. Jafnvel einstaklingurinn getur hafið störf fyrr en ella. Nýja verklagið er gjörbreyting á eldri högun og sýnir fram á miklar framfarir. Í umsvifum nær það til utanspítalaþjónustu, bráðamóttöku, röntgen-, tauga- og gjörgæsludeilda. Það er unnið af þverfaglegum verkefnahópi einstaklinga úr mismunandi stéttum innan spítalans, – þá einnig úti á landsbyggðinni.