Áhugasamir fundarmenn voru á kynningu HEILAHEILLA í Borgarnesi á heilablóðfallinu, miðvikudaginn 27. september 2023. Eftir að formaður félagsins, Þórir Steingrímsson, hélt stutta innleiðingu um stöðu félagsins í samfélaginu og hvaða hlutverki það gegnir í samskiptum sínum við almenning og stjórnvöld. Lagði hann jarnframt áherslu á að félagið tæki þátt í evrópskri aðgerðaráætlun um slagið, SAPE (Stroke Action Plan for Europe) er gildir til 2030 og kynni það fyrir heilbrigðisyfirvöldum, er kemur félaginu og landsmönnum öllum til góða í framtíðinni, m.a. að kynna markmið þess hér á landi getum haft að leiðarljósi:
- að fækka heilablóðföllum í Evrópu um 10%; (a.m.k. draga úr vexti um 10%)
- að meðhöndla 90% eða meira af sjúklingum með heilablóðfall í Evrópu á sérstökum slagdeildum (stroke unit) sem fyrsta stigi umönnunar;
- að hafa landsáætlun um heilablóðfall sem nær yfir allar heilbrigðisstofnanir frá sjálfbærni til lífs eftir heilablóðfall;
- að innleiða að fullu innlendar áætlanir fyrir fjölþátta lýðheilsuaðgerðir til að stuðla að og auðvelda heilbrigðan lífsstíl og að draga úr umhverfisþáttum (þ.m.t. loftmengun), félagslegum og efnahagslegum þáttum sem auka hættu á heilablóðfalli.
Síðan kom Sindri Már Finnbogason, fyrrverandi framkvæmdastjóri, og sagði frá sinni reynslu af slaginu og samskiptum sín við HEILAHEILL. Hlustuðu fundarmenn á hans frásögn með athygli.
Að lokum hélt Finnbogi Jakobsson, tauga-læknir, áhugavert erindi um endurhæfingu og orðin “slag”, “strók” og “heilablóðfall”. Þá sýndi hann með myndrænum hætti afleiðingu slags og hvaða möguleikar væru á endurhæfingu. Fjörugar umræður voru eftir fyrirlestrana og margar athugasemdir komu fram.