Miðvikudaginn 29. maí 2019 fjölmenntu Dalvíkingar á fyrirlestur um slagið (heilablóðfallið) er þeir Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og stjórnarmaðurinn Páll Hallfreður Árdal, stóðu fyrir undir yfirskriftinni “Við skulum láta slag standa”! Fv. bæjarstjóri, Svanfríður Jónasdóttir, var sérstakur gestur fundarins og opnaði hann með nokkrum orðum. Er þetta liður í að vekja almenning til vitundar um sjúkdóminn um land allt og hvetja til réttra viðbragða er grunur leikur á um fyrstu einkenni slagsins. Páll hóf fundinn með því að segja frá sinni reynslu af áfallinu. Þá tók Þórir við og fræddi fundarmenn um starfsemi félagsins og hvaða þjónustu það veitir landsmönnum og hvað ber að varast og þá ekki síður hvernig hægt væri, – þá með réttum viðbrögðum, koma í veg fyrir frekari skaða. Hann greindi einnig frá þeim framförum og nýungum er hafa átt sér stað á Landspítalanum að undanförnu, m.a. um nýja verkferla við segabrottnám sem er nýlega hafið hér á landi og sýndi fréttamyndbönd þar að lútandi. Lögð var áhersla á að landsbyggðin væri ekki undanskilin. Nokkrar fyrirspurnir voru lagðar fram og svo héldu menn glaðir heim.