Félagið frá fyrri tíð.

Á síðast fundi HEILAHEILLA laugardaginn 6. janúar s.l., fluttu þau Helgi Seljan, fyrrum alþingismaður og formaður fjáröflunarnefndar Heilaheilla og Edda Þórarinsdóttir, leikkona og í framvarðasveit Heilaheilla, skemmtilega dagskrá, eftir skýrslu formannsins, Þóris Steingrímssonar. Eftir flutning Eddu tók Helgi til máls og fór með erindi sitt um sögu félagsins frá fyrri tíð.  Þetta erindi Helga er […]

ALCAN styrkir HEILAHEILL

Föstudaginn 29. desember s.l. þá veitti ALCAN, meðal annarra, styrk til HEILAHEILLA við athöfn sem haldin var á Veitingahúsinu Café Aroma, í Miðbæ Hafnarfjarðar, þá fyrir framlag sitt til að sinna málefnum fólks sem hefur hlotið skaða vegna heilablóðfalls.  Er ALCAN fluttar bestu þakkir fyrir  og kemur þetta framlag sér vel fyrr starfsemi félagsins. Til […]

SAMTAUG og LSH

Þann 20.12.2006 hittust fulltrúar SAMTAUGAR og LSH á B2, en ár er liðið upp á dag frá því aðilar undirrituðu yfirlýsingu um samstarf með Landspítala-háskólasjúkrahúss og félaga taugasjúklinga á taugadeild sjúkrahússins , að viðstöddum Jóni Kristjánssyni, þá verandi heilbrigðisráðherra, er vottaði samkomulagið með undirskrift sinni.  Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) telur það skyldu sína að rækta samband við […]

Ráðherra styrkir HEILAHEILL.

Starf HEILAHEILLA hefur vakið athygli, þar á meðal alþingismanna, sem og annarra ráðamanna. T.d. var Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, á málþingi félagsins sem haldið var 21. október s.l..  Það var haldið í Súlnasal Hótel Sögu, Radisson SAS, undir heitinu “Áfall, en ekki endirinn!” þar sem sérfræðingar, hver á sínu sviði, læknar, hjúkrunarfræðingar, taugasálfræðingar, sjúkraþjálfarar, talmeinafræðingar, iðjuþjálfarar, […]

Samráðsfund um endurhæfingu í ráðuneytinu

Fulltrúi HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson formaður, tók þátt í “pallborðsumræðum” í Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytinu 12. desember s.l. sem var ”Samráðsfundur um endurhæfingu”.  Þar stjórnaði Guðrún Sigurjónsdóttir, f.h. ráðuneytisins umræðum og fulltrúar sjúklingafélaganna, [þiggjenda]  s.s. frá Blindrafélaginu, Hjartavernd, Þroskahjálp, Gigtarfélaginu, Öryrkjabandalaginu, o.fl.. , mættu  Þar var hverjum fulltrúa var gefinn kostur á því að koma sjónarmiðum hvers félags fyrir sig á […]

Reykjalundur heimsóttur

Miðvikudaginn 28. nóvember s.l. fóru fulltrúar HEILAHEILLA, Edda Þórarinsdóttir, Ragnar Guðni Axelsson (RAX) og Þórir Steingrímsson, formaður, að Reykjalundi í því skyni að afhenda starfsfólki þar DVD-stuðningsdiska, sem félagið hefur þegar fært taugasjúkdómadeildinni B2 og Grensásdeild, LSH.  Myndefnið á þessum dsikum er viðtöl við þá sem hafa fengið heilablóðfall, aðstandendur og fagaðila.  Móttökur voru frábærar og það þarf […]

Sambandsstjórnarfundur

Fundur í sambandsstjórn Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga var haldinn var 25. nóvember 2006 að Hátúni 12, Reykjavík.  Góð þátttaka var og þingfulltrúar komi frá öllum landshornum, en formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson, er gjaldkeri framkvæmdastjornar.  Voru ýmis mál rædd og farið var yfir starfsemina frá síðasta þingi, fjárhagsstöðuna, en hæst bar á góma […]

Heilaheill hjá Dómkirkjusöfnuði

Sunnudaginn 12. nóvember 2006 hélt formaður Heilaheilla, Þórir Steingrímsson, fyrirlestur um félagið, markmið þess og einnig um sína reynslu sem sjúklingur af heilablóðfallinu.  Lagði hann áherslu á gott líferni þar sem það drægi úr líkum á heilablóðfalli.  Vakti hann athygli á það sem hefur komið fram í málflutningi sérfræðinga, að sérstök heilablóðfallseining innan spítalans gæti aukið líkur á […]

DVD-efni afhent Grensásdeild

Þriðjudaginn 7. nóvember 2006 hélt Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, erindi á kynningarfundi um félagið, þar sem sjúklingar, aðstandendur og fagðilar sátu.  Nokkrar fyrirspurnir voru bornar fram og í lok þeirra var Dórótheu Bergs hjúkrunarfræðingi afhent, f.h. Grensásdeildar, DVD-sjóvarpsmyndefni [Stuðnings-diska] um heilablóðfall, þar sem rætt er við þekkta Íslendinga sem fengið hafa heilablóðfall, aðstandendur, lækna og hjúkrunarlið.  […]

Heilablóðfall efni endurmenntunarnámskeiðs

Áhugavert endurmenntunarnámskeið um heilablóðfall við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands var haldið í þann 6. nóv. 2006. Umsjónarmenn voru þau Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir og Einar M. Valdimarsson, sérfræðingar í heila og taugasjúkdómum, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Fossvogi.  Árlega fá um 700 Íslendingar einkenni heilablóðfalls og er algengasta orsök fötlunar á Íslandi, næst algengasta dánarorsökin og þriðja algengasta ástæða heilabilunar. Miklar framfarir […]

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur