Stjórnarfundur Heilaheilla haldinn 1. september 2016 kl.16:00 í Oddsstofu að Sigtúni 42, Reykjavík.
Mættir: Gunnhildur Hjartardóttir, Axel Jespersen, Kolbrún Stefánsdóttir, Þórir Steingrímsson og Baldur Kristjánsson
Afboðun: Páll Árdal
Fjarverandi: Haraldur Ævarsson og Árni Begmann
- Dagskrá:
- Formaður flytur skýrslu um stöðu félagsins
- Fjárhagsstaða félagsins
- Dagskrá vetrarins
- Önnur mál.
1. Formaður flutti skýrslu
2, Fjárhagsstaða félagsins.
Fjárhagsstaða félagsins er nú um 3.000.000 í plús að sögn gjaldkera. Samþykkt var að sækja um styrki frá fyrirtækum t.d. varðandi kostnað við nefnt app.
3. Dagskrá vetrarins.
Rætt um dagskrá vetrarins og um það til hvers við reynum að mæta fólki með viðveru og fundum. Föst viðvera á sjúkrastofnunum heldur áfram. Laugadagsfundir halda áfram, 1. laugardag í hverjum mánuði, stjórnarfundir eru ráðgerðir mánaðarlega, fundir verða eins og áður á (málstols)mánudögum og þriðjudögum
4. Önnur mál.
- Nordisk Afasiråd
Bryndís Bragadótttir og Axel Jespersen halda utan á stjórnarfund Nordisk Afasiråd í Osló um málstolið um miðjan mánuðin m.a. að reyna að koma málstolinu inn í íslenska velferðarkerfið. Rætt var um leiðir til að kenna málstol, hlutverk skólakerfis, velferðarþjónustu. Formaður Talmeinafræðinga Þórunn Halla Hafsteinsdóttir kemur vonandi á fund með AFASI fólki. Málstol þarf að vera sérstakur þáttur í kerfinu og er unnið eftir því. Axel kynnti hugmynd um að Öryrkjum yrði boðið í Hvalskoðun en slïk hugmynd hefur komið upp hjá Hvalaskoðunarfyrirtæki. Leiðrétt var greiðsla til formanns sem hefur greitt tengingu hjá símanum til Heilaheilla í rúmt ár að upphæð 166.798 krónur. Fram kom að Njáluferð félagsins tókst sérstaklega vel. þáttakendur voru 17 og leiðsögumaður var Bjarni Eiríkur Sigurðsson. Fram kom að Horizon 2020 (European Council – Evrópuráðið) hefðu skrifað Heilaheill og beðið um lýsingu á stöðu heilaheilbrigðismála hér. Þetta er liður í átaki þeirra að “Horfa yfir heiminn fram til 2020.” Ráðuneytin svöruðu að beiðni Heilaheilla. - Slagorðið
Blaðið. Pétur Bjarnason sér um blaðið. Rætt um mögulegar ráðleggingar til Péturs. Stjórnarfólki fannst ekki rétt að borga fólki fyrir að skrifa í blaðið.
Fleira gerðist ekki.
Baldur Kristjánsson, ritari
Sent from my iPad