Miðvikudaginn 30. október hélt stjórn HEILAHEILLA stjórnarfund, með tengingu norður á Akureyri, þar sem tekin var ákvörðun um þátttöku félagsins í Nordisk Afasirådet, sem eru samnorræn samtök málstolssjúklinga. Á fundinn kom Þór Þórarinsson, sérfræðingur á skrifstofu Velferðarráðuneytisins og hélt fyrirlestur um tengsl Íslands við Norðurlöndin, er varðar málefni fatlaðra. Fyrir lá tilboð stjórnar ráðsins til HEILAHEILLA um ókeypis aðild 2013 og hálft gjald eða 200 € 2014. Þar með er HEILAHEILL aðili í norrænu samstarfi og getur sótt inn á svið er heyra undir norrænt samstarf. Formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson, sótti stjórnarfund ráðsins í Kaupmannahöfn í september sl., þar sem lögð var áhersla á málstol. Er góðs að vænta af þessu samstarfi í framtíðinni.