Ánægja með “Málstol á mánudögum”!

HEILAHEILL hefur komið á laggirnar sérstökum málstolshópi hvern mánudag kl.13-14, í Síðumúla 6, Rvík. undir stjórn Bryndísar Bragadóttur.  Hafa þátttakendur lýst yfir mikilli ánægju með þetta fyrirkomulag.  Er markmiðið að rjúfa félagslega einangrun þeirra er hafa orðið fyrir málstoli með slagorðunum “Úr einangrun eftir áfall”.

                 
             

Er þessi hópur viðbót við hið öfluga starf sem er þegar fyrir á “Þriðjudagsfundum” félagsins, frá kl.13-15, þá á sama stað og ætlaður öllum slagþolum.  Eru því allir slagþolar hvattir til að nýta sér þessi tækifæri, þar sem þeir geta verið í sjálfseflingarhópi þeirra, er hafa gengið í gegnum svipuð áföll og þeir.  Er þetta allt endurgjaldlaust og því allir hvattir til að mæta og fá sér að minnsta kosti kaffi!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur