Föstudaginn 5. apríl 2019, á fyrsta góðviðrisdegi vetrarins, hélt HEILAHEILL fjölmennan kynningarfund fyrir fullu húsi um slagið fyrir almenning á veitingastaðnum Ránni, í Reykjanesbæ, undir slagorðunum, “Látum slag standa”! Séra Baldur B E Kristjánsson, hóf fundinn og sagði frá sínu slagi. Ræddi hann um mikilvægi félagsins og vitund almennings um áfallið, sér í lagi um málstolið. Síðan tók Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, við og flutti fyrirlestur um stöðu félagsins, stefnu þess.