
Dagana 3.- 6. maí 2026 fóru þau dr. Marianne E. Klinke, taugahjúkrunarfræðingur, Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugalæknir og Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA á ráðstefnu samtakanna SAP-E í Maastrtict, Hollandi, sem landsráðgjafar (coordinators) samtakanna á Íslandi. Þarna voru komnir saman 100 fulltrúar evrópulanda, bæði fagaðilar og slagþolar er greindu frá stöðu hvers lands fyrir sig varðandi slagið, meðhöndlun, eftirfylgni og endurhæfingu, eftir ákveðnum spurningalista, SST, (Stroke Service Tracker), er framkvædastjórn-in lagði fram. Það sem kom á óvart, að heilsugæslan hér á landi er enginn eftirbátur í skjótu viðbragði og í meðhöndlun, – en mætti gera betur í endurhæfingu og eftirfylgni innan heilbrigðiskerfisins.

