|
Fundur í stjórn Heilaheilla 19.02 kl. 16:30 I Oddstofu , Sigtúni 42, með tengingu til Akueyrar.
Mætt: Þórir, Kolbrún, Baldur, Páll í fjartengingu.
Fjarv.: Axel boðaði forföll.
- Form gaf skýrslu um starfsemi félagsins.
Talmeinsfræðingarnir Þórunn Hafsteinsdóttir og Ingunn Högnadóttir fara bráðlega á fund Nordisk Afasiarådet um málstol. Þá greindi hann frá að u.þ.b. þrjú þúsund manns hafa nú þegar halað niður neyðarappið frá Heilaheill og þrettán hafa þegar notað það. Hann gat um fyrirlestur Björns Loga Þórarinssonar læknis um nýjungar í greininni. Þá sagði hann frá fyrirhuguðum er fundi á vegum Heilaheilla 10. mars n.k. á Reyðarfirði. Baldur, Þórir og Páll fara á fundinn og kynna Heilaheill og fjalla um slagið. Kolbrún rukkaði Þórir um nánara plan um fundi sbr. Fundargerð frá 28.12.17. Fram kom að Ísafjörður og Akranes eru á radarnum, þ. e. þreifingar standa yfir með fundi á þessum stöðum. Ábending kom að gott gæti verið að auglýsa þessa fundi í útvarpi. Kolbrún sagði frá símhringingu frá bókara varðandi reikningsskil. Vantar gögn frá gjaldkera. Því beint til Axels að hann tali við hana og gangi frá málum.
- Fjárhagsstaða félagsins.
Gjaldkeri boðaði forföll fyrir þennan fund en fram kom hjá formanni að um 5 miljónir væru inn á bankareikningum Heilaheilla. Nú liggur á að senda inn umsókn til ÖBÍ vegna starfseminnar. Samþykkt að senda inn umsókn með aðaláherslu á vinnuna vegna Neyðarappsins, kynningu þess en einnig vegna málstolsvinnu sem felst m.a. í því að efla talmálsvinni félagsins. Samþykkt að Þórir vinni umsókn sem þarf að berast fyrir 27 febrúar.
- Aðalfundurinn
Aðalfundurinn verður haldinn eins og boðað hefur verið Sunnudaginn 25. febrúar.
- Önnur mál.
-
-
- Hugarfar, samtök fólks með áunninn heilaskaða hefur óskað eftir því að fara með Heilaheill norður næst þegar við fundum þar. Málstol og aðrir endurhæfingarþættir eru sameiginlegir.
- Gerð heimasíðunnar
- Gerð heimasíðunar er komin á fullt skrið.
- Húsnæði Heilaheilla
- Samþykkt að húsnæði Heilaheilla verði lánað að hluta til til Styktarsjóðs fatlaðra, er hefur aðstöðu að Sigtúni 42 105 Reykjavík.
- Flettiskiltið.
- Eru í þýðingu.
Fleira gerðist ekk
Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson
Fundarritari. |