Miðvikudaginn 8. jan. 2020 fékk Heilaheill samfélagsstyrk Norðurorku 2020 til kynningar á appi á starfssvæði fyrirtækisins. Síðasta ár hafa Þórir Steingrímsson, Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson og Páll Hallfreður Árdal ferðast víða um land. Fóru þeir til m.a. Húsavíkur, Akureyrar, Dalvíkur, Siglufjarðar og Sauðárkróks. Einnig um Vestfirði, Vesturland, Suðurland og á Austfirði, og kynnt app sem Heilaheill hefur gefið út. Hefur kynningin á appinu vakið mikla athygli á þessum stöðum. Páll hélt fyrirlestur fyrir starfsmenn Norðurorku um appið og vakti það mikla athygli meðal starfsmanna. Eftir fyrirlesturinn þá spunnust umræður um önnur veikindi t.d. hjartaáfall og ýmsa aðra sjúkdóma. Berum við Norðurorku okkar bestu þakkir fyrir styrkinn sem mun koma í góðar þarfir við að kynna það.