HEILAHEILL leggur land undir fót

Ferðalag

FerðalagHEILAHEILL, félag slagþolenda (heilablóðfall), ætlar að koma á kaffifundum á landsbyggðinni, eins og það hefur gert að undanförnu á Akranesi, Reykjanesbæ, Selfossi og víðar og kynna fyrir landsmönnum um viðbrögð við áfallinu, meðhöndlun og endurhæfingu.

Ætlunin er að vera með þessar kynningar á þekktum fundar/kaffistað í héraði, er almenningur getur sótt. Áformað er að kalla til svæðisbundinn og þekktan fagaðila um heilbrigðiskerfið og það sé a.m.k. einn sjúklingur (eða aðstandandi) er getur sagt frá sinni reynslu.

Fundurinn tekur u.þ.b. 1-2 klst. og áætlað er að formaður HEILAHEILLA Þórir Steingrímsson, stjórnarmennirnir séra Baldur Kristjánsson og Páll Árdal verði fundarmönnum til skrafs og ráðgerða. Þetta eru léttar og skemmti-legar samkomur og hjálpar öllum við að átta sig á breyttum aðstæðum í lífinu og að áfall sé ekki endirinn.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Félagið hyggst byrja á Reyðarfirði 10. mars n.k. og eru menn hvattir til að láta þetta tækifæri ekki frá sér fara!

 

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur