Nú standa yfir tökur kvikmyndafyrirtækisins EPOS ehf. á heilablóðfallinu fyrir HEILAHEILL og um viðbrögð Neyðarlínunnar, sjúkrabifreiða og þyrlu vegna útkalls á slaginu.Tíminn er naumur!Í myndinni kemur fram hvernig einstaklingur sem er staddur á víðavangi og hefur heila-appið í snjallsíma sínum, bregst við þegar hann kennir sér fyrstu einkenni heilablóðfallsins, m.a. málstol og getur þar af leiðandi hvorki gert grein fyrir sér né hvar hann er staddur.Neyðarlínan miðar þó út staðsetningu símans með GPS-rakningu, hvar sem hann er staddur á landinu og kallar út bráðalið.Myndinni er ætlað að sýna almenningi hversu áríðandi það er að bíða ekki!!Hver sekúnda getur skipt máli!Heilablóðfallið er þriðja stærsta dánarorsökin í heiminum, á eftir krabbameini og hjartasjúkdómum, og því er nauðsynlegt að hvetja almenning til þátttöku í skjótu viðbragði!Ekki leggja sig, ekki bíða eftir að þetta lagist, ekki fara á heilsugæsluna, heldur sannfærast um einkennin í heila-appinu og ýta strax á 112. Ekki hika, – þið verðið sótt! HÉR ER APPIÐ!