Árið 2007 var ég á mínu 35 aldursári, þriggja barna gift kona og var að byrja í söngnámi. Ég var alla tíð frekar heilsuhraust, reykti ekki, drakk lítið sem ekkert, meðgöngur og fæðingar barnanna minna höfðu gengið vel fyrir sig og ég var ávallt í eða undir kjörþyngd. Frá því ég man eftir mér hafði […]
Sumarið var farið að láta á sér kræla og sálin lyfti sér til himna með síaukinni birtu. Dag einn þegar veðurspáin var óvenju hagstæð fyrir Norðurland ákváðum við að aka norður og dvelja eina helgi í húsi okkar í Hrísey. Ég hafði ekki komið í eyjuna frá því ég fékk þar heilablóðfallið tæpu ári áður. […]
Ég spilaði mig til lífsins Ég var varla lagstur á koddann þegar allt fór skyndilega að hringsnúast í herberginu. Það var eins og eitthvað hefði tognað inni í hausnum á mér, mig vantaði súrefni, ég var að kafna og hálsinn stífnaði upp. Ég stóð upp úr rúminu og spurði Björk konuna mína hvað væri eiginlega […]
Létt á fæti og kvik í hugsun á ný Ég var búin að vera með höfuðverk og þungan verk við endajaxl í nokkra daga. Föstudaginn 20.febrúar 2004 vaknaði ég snemma með 4 ára syni mínum eftir erfiða nótt vegna mikilla verkja. Þegar ég vakna þá er helmingurinn af andliti og höfði undirlagt af verkjum og […]
Tilgangur þessarar greinar er að setja fram í mjög grófum dráttum hugleiðingar um eina leið, en ekki þá einu, til að breyta núverandi fyrirkomulagi á fjármögnun og yfirstjórn heilbrigðisþjónustu á Íslandi.Mikið hefur verið rætt um kostnað ríkisins við heilbrigðisþjónustu en lítið um þann gífurlega þjóðhagslega hagnað, sem af henni hefur hlotist, þ.e. hagnaðinn af því […]
HOLLVINIR GRENSÁSDEILDAR(Kennitala: 670406-1210 – Númer bankareiknings: 311-26-6704)AÐALFUNDUR 30. MAÍ 2007SKÝRSLA STJÓRNARSamtökin Hollvinir Grensásdeildar voru stofnuð 5. apríl 2006 og er þetta því fyrsta skýrsla fyrstu stjórnar félagsins. Eftir stofnfundinn skipti stjórnin þannig með sér verkum: Formaður, Gunnar Finnsson, varaformaður, Þórir Steingrímsson; ritari, Sigmar Þór Óttarsson,; gjaldkeri, Sveinn Jónsson; og meðstjórnandi Anna Geirsdóttir. Varamenn: Ásgeir B. […]
Byrjunin – Heilablóðfall vegna æðaflækju Ég man 12. október 1975, eins og hann hefði átt sér stað í gær. Daginn sem ég fékk heilablóðfallið. Ég var 29 ára gömul og bjó ásamt manni mínum og fjögurra mánaða gömlum syni í tveggja hæða húsi í Hafnarfirði. Maðurinn minn var ekki í bænum og ég hafði skorðað […]
Ég fékk verkefni að vinna úr Ég var staddur í eldhúsinu, árla morguns, er áfallið dundi yfir. Drakk morgunkaffið og fletti Morgunblaðinu, sem var nýkomið inn um lúguna. Að vísu hafði ég deginum áður leitað læknis, vegna flökurleika, höfuðverkjar og svima, en hann taldi enga hættu á ferðum og hugðist senda mig í jafnvægismælingu nokkrum […]
Það var fyrir fjórtán árum, að ég vaknaði um miðja nótt, með mikinn náladofa í vinstri handlegg. Það var sama hvað ég reyndi, þetta vildi ekki lagast. Við hringdum í næturlækni, sem sagði mér að hafa hátt undir handleggnum. Þetta gerði ég og sofnaði að lokum. Snemma morguns vaknaði ég og fann þá að ekki […]
Sumarið 2004, hafði ég verið að vinna mikið og verið í ýmsu meðfram mínu fasta starfi, sem er að vera Öryggisstjóri fyrir Kringluna Rekstrarfélag. Já, ég hafði farið á árganga mót norður á Siglufjörð, en ég er ættaður þaðan, var veislustjóri og var þar í mörgu að snúast. Ég hafði verið mældur hjá lækni árið […]

