Það var fyrir fjórtán árum, að ég vaknaði um miðja nótt, með mikinn náladofa í vinstri handlegg. Það var sama hvað ég reyndi, þetta vildi ekki lagast. Við hringdum í næturlækni, sem sagði mér að hafa hátt undir handleggnum. Þetta gerði ég og sofnaði að lokum. Snemma morguns vaknaði ég og fann þá að ekki […]
Sumarið 2004, hafði ég verið að vinna mikið og verið í ýmsu meðfram mínu fasta starfi, sem er að vera Öryggisstjóri fyrir Kringluna Rekstrarfélag. Já, ég hafði farið á árganga mót norður á Siglufjörð, en ég er ættaður þaðan, var veislustjóri og var þar í mörgu að snúast. Ég hafði verið mældur hjá lækni árið […]
Ég fékk heilablóðfall 28. desember 2003. Þann dag fór fjölskyldan í gönguferð í Heiðmörk ásamt vinafólki. Þetta var langur göngutúr sem reyndi nokkuð á þar sem tveggja ára dóttir okkar var dregin á snjóþotu um alla Heiðmörkina. Þegar við komum aftur að bílnum og ég var að stíga inn í hann fékk ég gríðarlegan höfuðverk. […]
Létt á fæti og kvik í hugsun á ný Ég var búin að vera með höfuðverk og þungan verk við endajaxl í nokkra daga. Föstudaginn 20.febrúar 2004 vaknaði ég snemma með 4 ára syni mínum eftir erfiða nótt vegna mikilla verkja. Þegar ég vakna þá er helmingurinn af andliti og höfði undirlagt af verkjum og […]
Ég spilaði mig til lífsins Ég var varla lagstur á koddann þegar allt fór skyndilega að hringsnúast í herberginu. Það var eins og eitthvað hefði tognað inni í hausnum á mér, mig vantaði súrefni, ég var að kafna og hálsinn stífnaði upp. Ég stóð upp úr rúminu og spurði Björk konuna mína hvað væri eiginlega […]
Byrjunin – Heilablóðfall vegna æðaflækju Ég man 12. október 1975, eins og hann hefði átt sér stað í gær. Daginn sem ég fékk heilablóðfallið. Ég var 29 ára gömul og bjó ásamt manni mínum og fjögurra mánaða gömlum syni í tveggja hæða húsi í Hafnarfirði. Maðurinn minn var ekki í bænum og ég hafði skorðað […]
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður Svanur fékk heilablóðfall og er dyggur félagi í HEILAHEILL. Eftirfarandi er viðtal við hann er birtist í Tunninni í Ólafsfirði 2011: Kraftaverkið í Fjallabyggð Í Ólafsfirði býr maður sem hefur fengið þyngra verkefni í lífinu en margur annar frá almættinu. Þrátt fyrir að hafa fengið mjög alvarlegt heilablóðfall og misst þrjár dætur […]