HEILAHEILL á Akureyri

Norðurlandshópur Heilahella stóð fyrir fundi að Bugðusíðu 1,sal Félags eldri borgara fimmtudaginn 26.janúar kl 17,00 Álfheiður Karlsdóttir iðjuþjálfi Hjálpartækjamiðstöð TR í Kristnesi var með spjall um ýmis hjálpartæki til nota við daglegt amstur.Að loknu spjalli var áheyrendum gefin kostur a að spyrja og skoða hlutina. Var spjalli hennar mjög vel tekið og spunnust fjörugar um […]

Þetta er ekki búið!

Fyrsti laugardagsfundur Heilaheilla var haldinn á nýju ári 3. janúar og var fjölsóttur.  Flutti Þórir Steingrímsson, formaður, stutta skýrslu um stöðu félagsins.  Þá var sérstaklega boðin velkomin á fundinn Guðbjörg Alda Þorvaldsdóttir, arkitekt, er fékk heilaslag 2001 og eftir aðdáunarverða endurhæfingu hefur henni hefur tekist að vinna á bug á áfallinu og er komin aftur […]

Lyfjaver styrkir FAÐM

Katrín Júlíusdóttir alþingismaður, formaður styrktarsjóðsins Faðms og Birgir Henningsson, stjórnarmaður tóku við jólastyrk Lyfjavers í húsakynnum þess að Suðurlandsbraut 22.  Faðmur er styrktarsjóður á vegum HEILAHEILLA, styrkir foreldra sem hafa fengið heilablóðfall og sem eru með börn 18 ára og yngri á framfæri sínu. Það var Aðalsteinn Steinþórsson framkvæmdastjóri Lyfjavers sem afhenti styrkinn sem er 250 þúsund […]

SAMTAUG fundar til sóknar!

Nokkrir fulltrúar SAMTAUGAR, samráðshóps taugasjúklingafélaga, hittust á fundi mánudaginn 8. desember 2008 og ræddu ástandið á B2 Taugadeild Landsspítalans.  Umræðurnar spunnust um hvað væri hægt að gera í því ástandi sem þjóðfélagið er nú í.  Þeir Guðjón Sigurðsson, Þórir Steingrímsson, Ásbjörn Einarsson og Pétur Halldór Ágústsson, forsvarsmenn samráðshópanna, voru sammála að óska eftir  fundi með […]

Fýla er mesta fötlunin!

Laugardagsfundur HEILAHEILLA hófst samkvæmt venju á ræðu formannsins Þóris Steingrímssonar og flutti hann skýrslu stöðu félagsin á þessum tímum.  Þá greindi hann frá því að hann og Pétur Rafnssons hefðu farið fyrir heilbrigðiisnefnd Alþingis og fylgt erindi HEILAHEILLA um fjárveitingu eftir.   Þá las Ingólfur Margeirsson úr bók sinni um Sæma rokk og síðan kom Guðjón […]

Heilaheill í kynningu!

Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, var á fundi með hjúkrunarfræðinemum í Háskóla íslands, samkvæmt beiðni Helgu Jónsdóttur, prófessors.  Fundurinn var í kennslustofu við Eiríksgötu, og var Þórir fyrir svörum ásamt fulltrúum Hjartaheilla og Giktarfélagi íslands.  Rætt var um stöðu langveikra.  Eftir að fulltrúarnir fluttu sínar tölur, voru margar fyrirspurnir bornar fram.  Heilaheill lagði ríka áherslu að fræðsluhlutverk sitt og með […]

Menningarlegur laugardagsfundur!

Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, greindi frá stöðu félagsins og það sem hefur áunnist á undanförnum misserum og kynnti m.a. fyrirlestur Þórs Þórarinsssonar, frá félagsmálaráðunetinu.  Fjallaði Þór m.a. um notendastýrða þjónustu [sem er hér á heimasíðunni].  Eftir það kynnti Edda Þórarinsdóttir, leikkona, uppsetningu leikhópsins „Á senunni“, á „Paris at night“ sem sýnt verður í Salnumí Kópavogi og […]

Slagdagur í þágu almennings!

Hinn árlegi slagdagur félagsins var haldinn 25.10.2008 í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni, Smáralindinni og á Glerártorgi.  Bæði sjúklingar, aðstandendur, læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir fagaðilar, veittu upplýsingar um félagið og gerðu fagaðilar m.a. ókeypis áhættumat á gestum og gangandi og veittu þeim upplýsingar um sjúkdóminn.  Félagið samanstendur af þeim er fengið hafa slag [heilblæðingar, blóðtappa eða súrefnisþurrð af […]

Slagdagurinn 2008 undirbúinn!

Framkvæmdahópur „Slagdags“ HEILAHEILLA kom saman 10.10.2008 í fundarherbergi LSH, Fossvogi, og undirbjó í verkefni félagsins á þessum degi í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni, Smáralindinni og við Glerártorg á Akureyri frá, frá kl.13:00-16:00 laugardaginn 26.10.2008 undir slagorðunum „Áfall er ekki endirinn!“ og „Þetta er ekki búið!“.   Markmiðið er að koma á framfæri fræðslu um sjúkdóminn til þess að […]

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur