Fimmtudagsmorguninn 25. janúar kl.07:00 flutti Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, fyrirlestur um félagið á morgunfundi Rotary-klúbbnum Straumi, á veitingastaðnum Hóteli Víkings, í Hafnarfirði. Drukkið var morgunkaffi, eftir morgunleikfimi og klúbbfélagar sýndu málefninu mikinn áhuga og margar spurningar voru lagðar fram. “Slagkorti” sem og ”Fyrstadagkorti” félagsins var dreift og nokkrir fundarmenn sögðu formanninum frá reynslu sinni af […]
Á síðast fundi HEILAHEILLA laugardaginn 6. janúar s.l., fluttu þau Helgi Seljan, fyrrum alþingismaður og formaður fjáröflunarnefndar Heilaheilla og Edda Þórarinsdóttir, leikkona og í framvarðasveit Heilaheilla, skemmtilega dagskrá, eftir skýrslu formannsins, Þóris Steingrímssonar. Eftir flutning Eddu tók Helgi til máls og fór með erindi sitt um sögu félagsins frá fyrri tíð. Þetta erindi Helga er […]
Fulltrúi HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson formaður, tók þátt í “pallborðsumræðum” í Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytinu 12. desember s.l. sem var ”Samráðsfundur um endurhæfingu”. Þar stjórnaði Guðrún Sigurjónsdóttir, f.h. ráðuneytisins umræðum og fulltrúar sjúklingafélaganna, [þiggjenda] s.s. frá Blindrafélaginu, Hjartavernd, Þroskahjálp, Gigtarfélaginu, Öryrkjabandalaginu, o.fl.. , mættu Þar var hverjum fulltrúa var gefinn kostur á því að koma sjónarmiðum hvers félags fyrir sig á […]
Föstudaginn 29. desember s.l. þá veitti ALCAN, meðal annarra, styrk til HEILAHEILLA við athöfn sem haldin var á Veitingahúsinu Café Aroma, í Miðbæ Hafnarfjarðar, þá fyrir framlag sitt til að sinna málefnum fólks sem hefur hlotið skaða vegna heilablóðfalls. Er ALCAN fluttar bestu þakkir fyrir og kemur þetta framlag sér vel fyrr starfsemi félagsins. Til […]
Þann 20.12.2006 hittust fulltrúar SAMTAUGAR og LSH á B2, en ár er liðið upp á dag frá því aðilar undirrituðu yfirlýsingu um samstarf með Landspítala-háskólasjúkrahúss og félaga taugasjúklinga á taugadeild sjúkrahússins , að viðstöddum Jóni Kristjánssyni, þá verandi heilbrigðisráðherra, er vottaði samkomulagið með undirskrift sinni. Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) telur það skyldu sína að rækta samband við […]
Starf HEILAHEILLA hefur vakið athygli, þar á meðal alþingismanna, sem og annarra ráðamanna. T.d. var Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, á málþingi félagsins sem haldið var 21. október s.l.. Það var haldið í Súlnasal Hótel Sögu, Radisson SAS, undir heitinu “Áfall, en ekki endirinn!” þar sem sérfræðingar, hver á sínu sviði, læknar, hjúkrunarfræðingar, taugasálfræðingar, sjúkraþjálfarar, talmeinafræðingar, iðjuþjálfarar, […]
Miðvikudaginn 28. nóvember s.l. fóru fulltrúar HEILAHEILLA, Edda Þórarinsdóttir, Ragnar Guðni Axelsson (RAX) og Þórir Steingrímsson, formaður, að Reykjalundi í því skyni að afhenda starfsfólki þar DVD-stuðningsdiska, sem félagið hefur þegar fært taugasjúkdómadeildinni B2 og Grensásdeild, LSH. Myndefnið á þessum dsikum er viðtöl við þá sem hafa fengið heilablóðfall, aðstandendur og fagaðila. Móttökur voru frábærar og það þarf […]
Fundur í sambandsstjórn Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga var haldinn var 25. nóvember 2006 að Hátúni 12, Reykjavík. Góð þátttaka var og þingfulltrúar komi frá öllum landshornum, en formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson, er gjaldkeri framkvæmdastjornar. Voru ýmis mál rædd og farið var yfir starfsemina frá síðasta þingi, fjárhagsstöðuna, en hæst bar á góma […]
Sunnudaginn 12. nóvember 2006 hélt formaður Heilaheilla, Þórir Steingrímsson, fyrirlestur um félagið, markmið þess og einnig um sína reynslu sem sjúklingur af heilablóðfallinu. Lagði hann áherslu á gott líferni þar sem það drægi úr líkum á heilablóðfalli. Vakti hann athygli á það sem hefur komið fram í málflutningi sérfræðinga, að sérstök heilablóðfallseining innan spítalans gæti aukið líkur á […]
Þriðjudaginn 7. nóvember 2006 hélt Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, erindi á kynningarfundi um félagið, þar sem sjúklingar, aðstandendur og fagðilar sátu. Nokkrar fyrirspurnir voru bornar fram og í lok þeirra var Dórótheu Bergs hjúkrunarfræðingi afhent, f.h. Grensásdeildar, DVD-sjóvarpsmyndefni [Stuðnings-diska] um heilablóðfall, þar sem rætt er við þekkta Íslendinga sem fengið hafa heilablóðfall, aðstandendur, lækna og hjúkrunarlið. […]