Reykjanesbær lætur slag standa!

Föstudaginn 5. apríl 2019, á fyrsta góðviðrisdegi vetrarins, hélt HEILAHEILL fjölmennan kynningarfund fyrir fullu húsi um slagið fyrir almenning á veitingastaðnum Ránni, í Reykjanesbæ, undir slagorðunum, “Látum slag standa”!  Séra Baldur B E Kristjánsson, hóf fundinn og sagði frá sínu slagi.  Ræddi hann um mikilvægi félagsins og vitund almennings um áfallið, sér í lagi um […]

Að láta slag standa á Selfossi!

Fimmtudaginn 28. mars hélt HEILAHEILL kynningarfund um slagið (heilablóðfallið) fyrir almenning á Hótel Selfossi og bauð upp á kaffi.  Fjölmenntu Selfossbúar og húsfyllir varð.  Séra Baldur B E Kristjánsson hóf fundinn með stuttu erindi um reynslu sína af slaginu og félaginu.  Eftir framsögu hans tók Þórir Steingríms-son formaður við og flutti erindi um slagið og […]

Að láta slag standa!

Föstudaginn 22. mars boðaði Svandís Sva-varsdóttir, heilbrigð-isráðherra, fjölmörg góðgerðarfélög, þ.á.m. HEILAHEILL, í sérstaka móttöku á Hotel Reykjavík Natura í því skyni að veita þeim styrki úr sjóði ráðuneytisins til málefna.  Á hún mikla þökk fyrir að veita þessu málefni brautargengi og vill félagið þakka henni sérstaklega.  Þetta er í annað sinnið sem ráðherra veitir styrk […]

Fullt hús í Borgarbyggð!

Fimmtudaginn 21. mars mætti fjöldi manns á fræðslufund Heilaheilla í Hjálma-kletti í Borgarnesi.  Fundarmenn  hlýddu á fyrirlestra um heilablóðfallið.  Auk flutnings Þóris Stein-grímssonar, for-manns Heilaheilla, um heilablóðfallið, forvarnir, snemm-tæka íhlutun heil-brigðiskerfisins við slaginu, stigu þeir Gunnlaugur Á Júlíusson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, Hjalti R Kristinsson og Baldur B E Kristjánsson á stokk og fluttu erindi, hver í […]

Hann létti sko undir……!

Laugardaginn 2. mars 2019 hélt HEILAHEILL sinn reglulega “ laugardagsfund”, þar sem öllum almenningi er boðið upp á að kynnast sjúkdómnum, forvörnum, meðhöndlun og endurhæfingu eftir slag (heilablóðfall), endurgjaldlaust, og stuðlar að því að hver sem hefur orðið fyrir áfallinu geti rekið inn höfuðið og fengið sér kaffi.  Sá er meðal systkina í sjúkdóminum og […]

Afstaðinn aðalfundur 2019.

Vel sóttur aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn laugardaginn 16. febrúar í húsakynnum félagsins að Sigtúni 42, Reykjavík, með beinni tengingu norður í samkomusal Einingar á Akureyri.  Þar sem félagið er með einstaklingsaðild á landsvísu, getur hver og einn, hvar sem hann býr á landinu sótt fundi félagsins á þessum tveimur þéttbýliskjörnum landsins, ef því er að […]

Segabrottnámið vakti athygli.

Fjölsóttur morgunfundur HEILAHEILLA var haldinn 2. febrúar sl. í húsakynnum félagsins að Sigtúni 42, Reykjavík.  Þórir Steingrímsson flutti skýrslu um stöðu félagsins, bæði innanlands og utan.  Á fundinum voru bornar fram fyrirspurnir, en nokkuð margir fundarmenn voru komnir á fund félagsins í fyrsta sinn.  Spiluð voru myndskeið um störf þeirra Björns Loga Þórarinssonar, lyf- og, […]

10 ár kvenna í Go Red í Hörpunni!

10 ára ráðstefna GO RED átaksins hér á landi var haldin í Hörpu 1. febrúar s.l. fyrir fullu húsi, þar sem rauðklæddar konur voru í meirihluta.  Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, hjartalæknir reið á vaðið og fræddi ráðstefnugesti um áhættuþætti og meðferð við ætlaðri hjartaveiki kvenna.  Fylgdu þær Helga Margrét Skúladóttir, hjartalæknir;  Ingibjörg Hreiðarsdóttir, yfirljósmóðir; Unnur Valdimarsdóttir, […]

Go Red í HÖRPUNNI 1. febrúar 2019 – Hjartans mál!

Ýttu á myndina og skráðu þig inn! Hjartagalli getur leitt til heilablóðfalls, – jafnvel dauða.  Enginn er undanþeginn þeirri áhættu er fylgir hjartasjúkdómum, hverju nafni sem þeir nefnast.  Hjartagalli og heilablóðfall eru tvær stærstu dánarorsökin í heiminum,- eftir krabbameini.  Þessir sjúkdómar gera engan mun á aldri eða kyni og konur eru nú sérstaklega tilkallaðar í […]

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur