Laugardaginn 4. maí s.l. var síðasti “Laugardagsfundur” HEILAHEILLA fyrir sumarið haldinn í Sigtúni 42, Reykjavík við fjölmenni. Góðkunnugu leik- og söngkonurnar Þórunn Erna Clausen og Soffía Karlsdóttir (Valkyrjurnar), voru gestir fundarins og fóru á kostum með þekktum slagörum eldri tímans. Var ekki annað að sjá að fundarmenn voru með á nótunum, allt frá fyrirlestri formannsins,Þóris […]
Svo sem greint hefur verið frá í fréttum þessa dagana þá er að hefjast rannsókn á einstaklingum sem gætu verið með stökkbreytt gen sem valdið getur heilablæðingu. Þessi stökkbreyting er einungis kunn hjá fáum tuga einstak-linga og alls óþekkt utan Íslands. Hákon Hákonarson læknir stendur fyrir þessari rannsókn, sem framkvæmd verður á Land-spítala Háskólasjúkrahúsi við […]
Dagana 8. og 9. apríl 2019 hélt HEILAHEILL kynningarfundi um slagðið, á Sigló Hótel, Siglufirði og á Kaffi Krók, Sauðárkróki, undir slagorðunum, “Látum slag standa”! Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, setti fundina, bauð alla velkomna og síðan tók Páll Árdal, talsmaður félagsins á Akureyri, við og sagði frá starfsemi þess og hvaða þjónustu það veitti Norðlendingum. […]
Föstudaginn 5. apríl 2019, á fyrsta góðviðrisdegi vetrarins, hélt HEILAHEILL fjölmennan kynningarfund fyrir fullu húsi um slagið fyrir almenning á veitingastaðnum Ránni, í Reykjanesbæ, undir slagorðunum, “Látum slag standa”! Séra Baldur B E Kristjánsson, hóf fundinn og sagði frá sínu slagi. Ræddi hann um mikilvægi félagsins og vitund almennings um áfallið, sér í lagi um […]
Fimmtudaginn 28. mars hélt HEILAHEILL kynningarfund um slagið (heilablóðfallið) fyrir almenning á Hótel Selfossi og bauð upp á kaffi. Fjölmenntu Selfossbúar og húsfyllir varð. Séra Baldur B E Kristjánsson hóf fundinn með stuttu erindi um reynslu sína af slaginu og félaginu. Eftir framsögu hans tók Þórir Steingríms-son formaður við og flutti erindi um slagið og […]
Föstudaginn 22. mars boðaði Svandís Sva-varsdóttir, heilbrigð-isráðherra, fjölmörg góðgerðarfélög, þ.á.m. HEILAHEILL, í sérstaka móttöku á Hotel Reykjavík Natura í því skyni að veita þeim styrki úr sjóði ráðuneytisins til málefna. Á hún mikla þökk fyrir að veita þessu málefni brautargengi og vill félagið þakka henni sérstaklega. Þetta er í annað sinnið sem ráðherra veitir styrk […]
Fimmtudaginn 21. mars mætti fjöldi manns á fræðslufund Heilaheilla í Hjálma-kletti í Borgarnesi. Fundarmenn hlýddu á fyrirlestra um heilablóðfallið. Auk flutnings Þóris Stein-grímssonar, for-manns Heilaheilla, um heilablóðfallið, forvarnir, snemm-tæka íhlutun heil-brigðiskerfisins við slaginu, stigu þeir Gunnlaugur Á Júlíusson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, Hjalti R Kristinsson og Baldur B E Kristjánsson á stokk og fluttu erindi, hver í […]
Laugardaginn 2. mars 2019 hélt HEILAHEILL sinn reglulega “ laugardagsfund”, þar sem öllum almenningi er boðið upp á að kynnast sjúkdómnum, forvörnum, meðhöndlun og endurhæfingu eftir slag (heilablóðfall), endurgjaldlaust, og stuðlar að því að hver sem hefur orðið fyrir áfallinu geti rekið inn höfuðið og fengið sér kaffi. Sá er meðal systkina í sjúkdóminum og […]
Vel sóttur aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn laugardaginn 16. febrúar í húsakynnum félagsins að Sigtúni 42, Reykjavík, með beinni tengingu norður í samkomusal Einingar á Akureyri. Þar sem félagið er með einstaklingsaðild á landsvísu, getur hver og einn, hvar sem hann býr á landinu sótt fundi félagsins á þessum tveimur þéttbýliskjörnum landsins, ef því er að […]